FRÆÐSLUEFNI OG FUNDARGERÐIR

  1. Fundur stjórnar FÍÆT 2016-2017. Haldinn í Reykjavík 20.mars. 2017 kl. 14:30

Mætt: Stefán, Linda, Bragi, Gísli Rúnar, Ragnar og Soffía sem ritaði fundargerð.

Mál á dagskrá

  1. Stefnumótun FÍÆT – Janus Guðlaugson mætir og fór yfir gögnin, fundarmenn hafa 2 vikur til að senda Janusi athugasemdir og best að hafa þær í track changes.

 

  1. Lagabreytingar FÍÆT í kjölfar stefnumótunarvinnu – Farið yfir drög að lögum sem lögð verða fram á næsta aðalfundi

Fundarboð á aðalfund  ( 11. maí ) verður sent út fyrir páska og tillögur að lagabreytingum verða sendar félagsmönnum  mögulega á sama tíma. Stefnumótunargögn verða einnig send til félagsmanna til rýningar fyrir aðalfund.

  1. Fræðsluferð 2017 – Gísli Rúnar fór yfir stöðu mála, 13 félagsmenn FÍÆT að fara í ferðina.

Umræður um að skoða með ferð haustið 2018 – meira stíluð á stjórnunarhlutverk félagsmanna  auk íþrótta og tómstundamála.

 

  1. Aðalfundur FÍÆT 2017 – Farið yfir fyrirkomulag og hver gerir hvað í undirbúningi vegna aðalfundar. Dagsetning  aðalfundar er 11. - 12. maí á Reykjanesi.

Dagskrá hefst kl.  12:00 fimmtudag 11.maí – Aðalfundur  og fræðsluerindi dagskrá send út fyrir páska.

 

  1. Mál til umsagnar

-          frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof (fæðingarhjálp), 110. mál. Skil 22.mars. uppl. http://www.althingi.is/altext/146/s/0169.html  Bragi ætlar að skoða þetta frumvarp og senda umsögn frá FÍÆT.

 

-          Ein umsögn farin út við máli um sálfræðiaðstoð í framhaldsskólum. Lagt fram til kynningar á stjórnarfundi, fundarmenn sáttir við umsögnina.

 

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 16.30