Samskipti

REGLUR FÉLAGSINS

F.I.Æ.T.

Lög Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi.

Saga félagsins í stuttu máli

Skoða nánar

1. grein.

Nafn félagsins er Félag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi skammstafað: F.Í.Æ.T.
Samtökin hafa heimili og varnarþing hjá formanni hverju sinni.

2. grein.

Rétt til aðildar að félaginu eiga þeir stjórnendur sem hafa umsjón með íþrótta-, æskulýðs- og frítímamálum hjá ríki og sveitarfélögum, þó starfsheiti þeirra séu ekki þau sömu.

3. grein.

Tilgangur og markmið félagsins er m.a.:
● að hafa áhrif á mótun heildarstefnu ríkis og sveitarfélaga á sviði íþrótta- og frítímamála.
● að auka samstarf meðal félagsmanna.
● að stuðla að aukinni þekkingu og fræðslu meðal félagsmanna.
● að stuðla að aukinni samvinnu við erlenda samstarfsaðila.
● að stuðla að fræðslu til almennings um gildi íþrótta- og frítímastarfs sem og almennri lýðheilsu.
● að stuðla að auknu jafnrétti í íþrótta- og frítímastarfi.
● að stuðla að samræmingu og hagkvæmni við undirbúning og framkvæmdir sem tengjast íþrótta- og frítímamannvirkjum.
● að stuðla að sjálfbærni og umhverfisvænum lausnum í íþróttamannvirkjum og starfsemi.
● að stuðla að samvinnu þeirra aðila sem vinna að hvers konar forvörnum.
● að stuðla að samstarfi íþrótta-, frítíma- og skólastarfs.
● að eiga samskipti við ríki, sveitarfélög og félagasamtök vegna íþrótta- og frítímamála.

4. grein.

Til að vinna að markmiðum sínum heldur félagið árlega fundi að vori og hausti. Vorfundur, sem er aðalfundur félagsins, skal haldinn eigi síðar en 31. maí ár hvert og leggur stjórn félagsins til aðalfundarstað í samráði við félagsmenn. Stjórn félagsins er heimilt að boða til auka aðalfundar ef nauðsyn krefur. Haustfundur skal öllu jöfnu haldinn í október ár hvert. Fundir mega fara fram rafrænt ef aðstæður kalla á það.

5.grein.

Aðalfundur félagsins er æðsta vald í málefnum þess. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað og skal boða aðalfund með minnst mánaðar fyrirvara. Dagskrá aðalfundar má breytast með samþykki einfalds meirihluta fundarmanna.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Setning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
5. Umræður um skýrslu og ársreikninga.
6. Lagabreytingar.
7. Fræðslu- og upplýsingaerindi.
8. Kosning formanns, stjórnar, skoðunarmanna og fagnefnda.
9. Ákvörðun um árgjald.
10. Inntaka nýrra félaga.
11. Önnur mál.

6.grein.

Stjórn félagsins skipa:
• Formaður kjörinn til tveggja ára.
• Fjórir meðstjórnendur, kjörnir til tveggja ára. Kosning meðstjórnenda skiptist þannig að tveir og tveir eru kosnir annað hvert ár.
• Stjórnarmenn skipta með sér verkum varaformanns, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda.
• Hver stjórnarmaður má sitja að hámarki sex ár samfellt. Að þeim tíma loknum er heimilt að bjóða sig fram til varastjórnar.
• Kjósa skal tvo varamenn og tvo skoðunarmenn reikninga til eins árs í senn.
• Kjósa skal tvo félagsmenn í eftirtaldar fagnefndir:
o Íþróttanefnd
o Frítímanefnd
o Fræðslu- og upplýsinganefnd

7. grein.

Lögum þessum er einungis hægt að breyta á aðalfundi og með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund. Félagsmönnum skulu kynntar tillögur að breytingum 2 vikum fyrir aðalfund. Rafrænar tillögur og kynningar eru jafngildar hefðbundnum skjölum.

8. grein.

Lög þessi öðlast gildi við samþykkt aðalfundar. Jafnframt falla úr gildi fyrri lög. Ný lög skulu vera aðgengileg félagsmönnum innan tveggja vikna frá samþykkt.

Lög félagsins voru samþykkt á Ísafirði 10. maí 1997.
Breytingar á 5. grein gerð í Reykjavík 23. maí 2001.
Breytingar á 8. grein gerð á Akureyri 10. maí 2002.
Breytingar á 5. grein gerð á Ísafirði 20. maí 2005.
Breytingar á 7. grein gerð í Snæfellsbæ 13. apríl 2012.
Breytingar á 2., 3., 4., 5., 6., 7. og 8. grein í Grindavík 12. maí 2017.
Breytingar á 6. grein 6. maí 2021
Breytingar á 2, 3, 4, 5, 6, 7 og 8. gr. á Húsavík 3. apríl 2025

Reglur FIÆT

Lög Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi.