Ályktun á haustfundi Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi vegna sölu áfengis á íþróttaviðburðum.
Félag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi (FÍÆT) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áfengissölu á íþróttaviðburðum á Íslandi. Íþróttastarf á Íslandi er mikilvægur og öflugur vettvangur heilsueflingar, forvarna og félagslegs þroska, sérstaklega meðal barna og ungmenna. FÍÆT telur að sala á áfengi á íþróttaviðburðum gangi þvert gegn tilgangi íþrótta og sendi röng skilaboð um tilgang íþróttastarfseminnar, sérstaklega til barna og ungmenna.
FÍÆT bendir á að áfengissala á íþróttaviðburðum stuðli að aukinni hættu á óviðeigandi hegðun áhorfenda, neikvæðum áhrifum á fjölskylduvænt umhverfi og grafi undan þeim gildum sem íþróttir standa fyrir, svo sem jákvæðum félagsþroska og heilbrigðum lífsstíl. Fyrirmyndir barna og ungmenna eru bæði innan vallar en líka í stúkunni og mikilvægt er að fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar.
FÍÆT leggur áherslu á að tryggja heilbrigt umhverfi fyrir öll sem taka þátt í íþróttastarfi á Íslandi. Að þessu sögðu, skorar FÍÆT á stjórnvöld, sveitarfélög, íþróttasérsambönd, íþróttafélög og skipuleggjendur íþróttaviðburða að standa vörð um gildi íþróttahreyfingarinnar og tryggja að ekki verði selt áfengi á íþróttaviðburðum. Á sama tíma hvetur félagið til frekari umræðu um ábyrga stefnumótun þegar kemur að áfengisneyslu í tengslum við samfélagslega viðburði.