Samskipti

Aðalfundur FÍÆT 2026

15.5.2026 | Fræðsluefni og fundargerðir

Aðalfundur FÍÆT 2026

Haldinn á Ísafirði 16. apríl 2026.
Hefðbundin aðalfundarstörf Kl.10
Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins:

1. Setning
2. Kosning fundarstjóra
3. Inntaka nýrra félaga
4. Skýrsla stjórnar
5. Endurskoðaðir ársreikningar l
6. Umræður um árgjald FÍÆT
7. Lagabreytingar
9. Kosning stjórnar, skoðunarmanna og fagnefnda
Meðstjórnendur framboð
Varastjórn framboð
Skoðunarmenn reikninga
Kjör í nefndir félagsins
– Íþróttanefnd
– Frítímanefnd
– Fræðslu og upplýsinganefnd
10. Önnur mál
a) Meðferð fjármuna félagsins
b) Áskorun vegna nýrra æskulýðslaga
c) Stjórnun frístundaheimila

Formaður Gunnar Eysteinn Sigurðsson setur fundinn kl. 10:00
Formaður leggur til að Helgi Eiríksson verði kjörin fundarstjóri, samþykkt samhljóða.
Inntaka nýrra félaga. Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir, Eygló Rut Hákonardóttir, Jóna Rán Pétursdóttir og Gissur Ari Kristinsson, kynntu sig og klöppuðu fundarmenn fyrir þeim.
Formaður Gunnar Eysteinn Sigurðsson flutti skýrslu stjórnar.
Gjaldkeri félagsins Guðmundur Stefán Gunnarsson fer yfir ársreikning stjórnar.
Viðmiðunarreglur um meðferð fjármuna félagsins tekin inn með samþykki fundarins undir þessum lið.
Formaður Gunnar Eysteinn Sigurðsson fer yfir viðmiðunarreglur.
– Umræður fara fram um reglurnar sem stjórn leggur til að verði samþykktar.
– Reglunum er aðeins hægt að breyta á aðalfundi, mikilvægt að dagsetja reglurnar og endurskoða árlega.

Ársreikningur og ársskýrsla lagðar fram til samþykktar, fundurinn samþykkti samhljóða.
Formaður Gunnar Eysteinn Sigurðsson ræðir árgjald FÍÆT, okkar árgjald er 50.000 kr, hefur hækkað ríflega síðustu tvö ár og leggur stjórn til að árgjaldi sé haldið óbreyttu að sinni.
Helgi Eiríksson bendir á að meðlimir FÍÆT skoði hjá sínu sveitarfélagi fyrir fundi hvort þeir hafi umboð til að samþykkja hækkun á árgjaldi.
Samþykkt samhljóða að halda árgjaldi óbreyttu.
Engar lagabreytingar.
Kosning stjórnar:
Formaður situr áfram.
Victor Berg Guðmundsson stjórnarmaður heldur áfram.
Dagný Finnbjörnsdóttir, Sigrún Sveinbjörnsdóttir og Jóna Rán Pétursdóttir bjóða sig fram í stjórn, engin önnur framboð og nýir stjórnarmenn klappaðir inn í stjórn.
Hafþór Birgisson og Magnús Ingi Bæringsson bjóða sig fram sem varamenn í stjórn, engin önnur framboð og klappað fyrir þeim.
Skoðunarmenn reikninga, Ellert Örn Erlingsson gefur kost á sér til áframhaldandi setu, Atli Steinn Árnason býður sig einnig fram, var það samþykkt samhljóða.

Kjör í nefndir félagsins:
Íþróttanefnd
Ellert Örn Erlingsson, Tinna Rós Steinsdóttir, Guðjón Svansson og Kári Jónsson bjóða sig fram til að starfa í nefndinni, fundurinn klappar fyrir því.
Frítímanefnd
Guðrún Kaldal, Áslaug Einarsdóttir, Eygló Rut Hákonardóttir og Gissur Ari Kristinsson bjóða sig fram til að starfa í nefndinni, fundurinn klappar fyrir því.
Fræðslu og upplýsinganefnd
Áslaug Einarsdóttir og Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir bjóða sig fram til að starfa í nefndinni, fundurinn klappar fyrir því.
Önnur mál.
Victor Berg Guðmundsson les upp tillögu að áskorun til mennta- og barnamálaráðherra um að fylgja eftir frumvarpi til laga um æskulýðs- og frístundastarf. Fundurinn samþykkir áskorun og felur stjórn að senda frá sér bréfið til aðila og samtaka sem talin voru upp á fundinum.
Umræður um stjórnun frístundaheimila. Aðalfundur felur stjórn að stofna til samtals við Fagfrí, Samfés og Skólastjóra félag Íslands um fyrirkomulag stjórnunar á frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum.
Umræður um umboð stjórnarmeðlima þegar starfsfólk hættir störfum í sínu sveitarfélagi. Aðalfundur FÍÆT áréttar að ef stjórnarmaður missir umboð sitt til að vera í félaginu, víkur úr félaginu og þar með úr stjórn. Ef stjórn er ekki starfhæf þarf að boða til aðalfundar.
Umræður um merki og ásýnd félagsins. Stjórn sýnir tillögur af nýjum merkjum félagsins. Fundargestir eru sammála um að breyta núverandi merki félagsins. Aðalfundur hvetur stjórn til að leggja fram nýjar hugmyndir yfir merki félagsins fyrir haust fund félagsins 2026.

Fundi slitið kl. 11:42

Fréttir

Fundargerðir